73. fundur
atvinnuveganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 28. maí 2015 kl. 09:00


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:30
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Kristján L. Möller (KLM), kl. 09:00
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:00
Róbert Marshall (RM) fyrir Björt Ólafsdóttur (BjÓ), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:00

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 09:00
Fundargerðir 66., 70. og 72. fundar voru samþykktar.

2) 421. mál - leiga skráningarskyldra ökutækja Kl. 09:00
Málið var afgreitt frá nefndinni með breytingartillögum. Undir nefndarálit rita allir mættir nefndarmenn: JónG, KLM, LRM, HarB, RM, PJP, ÞorS (með fyrirvara) og ÞórE.

3) 698. mál - niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar Kl. 09:45
Málið var afgreitt frá nefndinni. Undir nefndarálit rita allir mættir nefndarmenn: JónG, KLM, LRM, HarB, RM, PJP, ÞorS og ÞórE.

4) 644. mál - dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim Kl. 09:50
Málið var afgreitt frá nefndinni. Undir nefndarálit rita allir mættir nefndarmenn: JónG, KLM, LRM, HarB, RM, PJP, ÞorS og ÞórE.

5) Önnur mál. Kl. 09:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:50