83. fundur
atvinnuveganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 16. júní 2015 kl. 08:15


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 08:15
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 08:15
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 08:15
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 08:15
Eldar Ástþórsson (EldÁ) fyrir Björt Ólafsdóttur (BjÓ), kl. 08:15
Kristján L. Möller (KLM), kl. 08:15
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 08:15
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 08:15
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 08:15

Jón Þór Ólafsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 08:15
Fundargerð 80. fundar var samþykkt.

2) 775. mál - áætlun um meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla Kl. 08:15
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Hinrik Greipsson og Jóhann Guðmundsson frá atvinnuveg- og nýsköpunarráðuneyti.

3) 691. mál - stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl Kl. 09:05
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Hinrik Greipsson og Jóhann Guðmundsson frá atvinnuveg- og nýsköpunarráðuneyti.

4) Önnur mál. Kl. 10:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:15