19. fundur
atvinnuveganefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 20. nóvember 2018 kl. 09:05


Mættir:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:05
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 09:05
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE), kl. 09:05
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:05
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:05
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:05
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 09:05
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:05
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 09:05

Inga Sæland boðaði forföll.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:05
Fundargerðir 13., 14. og 18. fundar voru samþykktar.

2) 144. mál - veiðigjald Kl. 09:05
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Arnór Snæbjörnsson og Jóhann Guðmundsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
Formaður lagði fram nefndarálit og breytingartillögur. Frumvarpið var afgreitt frá nefndinni af meiri hluta hennar. Undir nefndarálit rita: LRM, HSK, ÁsF, KÓP og NTF.

Bókun:
Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar mótmæla harðlega þeim ólýðræðislegu vinnubrögðum formanns að afgreiða málið út í andstöðu þegar liggja fyrir óskir nefndarmanna um gesti vegna málsins.

3) Önnur mál Kl. 10:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:20