68. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 10. júní 2020
kl. 15:00
Mætt:
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 15:00Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 15:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 15:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 15:00
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 15:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 15:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 15:00
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 15:00
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 15:00
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 15:00
Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað.
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 15:00
Dagskrárlið frestað.
2) 251. mál - lax- og silungsveiði Kl. 15:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.
3) 639. mál - Orkusjóður Kl. 15:40
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.
4) 714. mál - breyting á ýmsum lögum á sviði landbúnaðar og matvæla vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu Kl. 16:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.
5) 120. mál - ráðstafanir til að draga úr notkun pálmaolíu á Íslandi Kl. 16:40
Framsögumaður, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, kynnti drög að nefndaráliti.
Allir viðstaddir nefndarmenn samþykktu að afgreiða málið til síðari umræðu.
Allir viðstaddir nefndarmenn rituðu undir nefndarálitið.
6) Önnur mál Kl. 16:45
Nefndin ræddi störfin framundan.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 16:47