75. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 18. júní 2020 kl. 13:50


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 13:50
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 13:50
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 13:50
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 13:50
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur (ÞSÆ), kl. 13:50
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 13:50
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 13:50
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 13:50
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 13:50
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 13:50

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:50
Dagskrárlið frestað.

2) 944. mál - pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun og ríkisábyrgðir Kl. 13:50
Nefndin fékk á sinn fund Skarphéðinn Berg Steinarsson frá Ferðamálastofu og ræddi jafnframt við Jóhannes Þór Skúlason frá Samtökum ferðaþjónustunnar í gegnum fjarfundabúnað. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum fundarmanna.

3) Önnur mál Kl. 14:55
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:55