2. fundur
atvinnuveganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 13. október 2020 kl. 09:02


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:02
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 09:02
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 09:02
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:02
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:02
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:02
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:02
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:02
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 09:02
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:02

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:02
Fundargerð 1. fundar var samþykkt.

2) Kynning á skýrslu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um niðurstöður óháðrar nefndar um athugun á aðferðafræði, áhættumati og greiningum á fiskeldisburðarþoli á vegum Hafrannsóknastofnunar Kl. 09:02
Á fund nefndarinnar mættu Gunnar Stefánsson prófessor, formaður óháðrar nefndar um athugun á aðferðarfræði, áhættumati og greiningum á fiskeldisburðarþoli á vegum Hafrannsóknastofnunar, Sigurður Guðjónsson og Ragnar Jóhannsson frá Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna og Jón Þrándur Stefánsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Gestirnir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 12. mál - merkingar og upplýsingaskylda varðandi vörur sem tengjast orkunotkun Kl. 10:45
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti.

4) Önnur mál Kl. 10:45
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:57