7. fundur
atvinnuveganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn föstudaginn 23. október 2020 kl. 10:00


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 10:00
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 10:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 10:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 10:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 10:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 10:00
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 10:00

Haraldur Benediktsson var fjarverandi vegna annarra þingstarfa. Njáll Trausti Friðbertsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Fundargerðir 5. og 6. fundar voru samþykktar.

2) 224. mál - búvörulög Kl. 10:00
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti og fresta ákvörðun um framsögumann.

3) 44. mál - mótun sjálfbærrar iðnaðarstefnu Kl. 10:00
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti og fresta ákvörðun um framsögumann.

4) 37. mál - tímabinding veiðiheimilda til 20 ára o.fl. Kl. 10:00
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti og fresta ákvörðun um framsögumann.

5) 112. mál - ráðstafanir til að draga úr notkun pálmaolíu á Íslandi Kl. 10:00
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti og fresta ákvörðun um framsögumann.

6) 49. mál - aðgerðaáætlun um nýtingu þörunga Kl. 10:00
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti og fresta ákvörðun um framsögumann.

7) 56. mál - samvinnufélög o.fl. Kl. 10:00
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti og fresta ákvörðun um framsögumann.

8) Önnur mál Kl. 10:04
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:04