38. fundur
atvinnuveganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 1. febrúar 2021 kl. 15:00


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 15:00
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 15:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 15:00
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 15:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 15:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 15:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 15:00
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 15:00

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Ásmundur Friðriksson boðaði forföll.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:00
Fundargerð 26. fundar var samþykkt.

2) 345. mál - lax- og silungsveiði Kl. 15:00
Nefndin fékk á sinn fund Ásu Þórhildi Þórðardóttur, Arnór Snæbjörnsson og Elísabetu Önnu Jónsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin ákvað að Njáll Trausti Friðbertsson yrði framsögumaður málsins.

3) 375. mál - jarðalög Kl. 15:24
Nefndin fékk á sinn fund Ásu Þórhildi Þórðardóttur, Arnór Snæbjörnsson og Elísabetu Önnu Jónsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin ákvað að Halla Signý Kristjánsdóttir yrði framsögumaður málsins.

4) 321. mál - Tækniþróunarsjóður Kl. 15:49
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðmund Frey Úlfarsson frá Háskóla Íslands og Jónas Þór Snæbjörnsson frá Háskólanum í Reykjavík.

Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Samhliða var fjallað um 5. dagskrárlið, frumvarp til laga um opinberan stuðning við nýsköpun.

5) 322. mál - opinber stuðningur við nýsköpun Kl. 15:49
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðmund Frey Úlfarsson frá Háskóla Íslands og Jónas Þór Snæbjörnsson frá Háskólanum í Reykjavík.

Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Samhliða var fjallað um 4. dagskrárlið, frumvarp til laga um Tækniþróunarsjóð.

6) Önnur mál Kl. 16:27
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:27