50. fundur
atvinnuveganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 10. mars 2021 kl. 09:00


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:00
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 09:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:00
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 09:00
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:00

Ásmundur Friðriksson og Haraldur Benediktsson boðuðu forföll.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) Kynning á aðgerðaáætlun til eflingar íslensks landbúnaðar Kl. 09:00
Nefndin fékk á sinn fund Ásu Þórhildi Þórðardóttur, Arnór Snæbjörnsson og Sigurður Eyþórsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 375. mál - jarðalög Kl. 09:40
Nefndin fékk á sinn fund Ásu Þórhildi Þórðardóttur og Arnór Snæbjörnsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 10:18
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:20