65. fundur
atvinnuveganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn föstudaginn 7. maí 2021 kl. 13:03


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 13:03
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 14:40
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 13:03
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 13:03
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 13:19
María Hjálmarsdóttir (MH), kl. 13:03
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 13:03
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 13:03
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 13:03

Helgi Hrafn Gunnarsson vék af fundi kl. 14:11.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:03
Dagskrárlið frestað.

2) 704. mál - breyting á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnar Kl. 13:03
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Grím Sigurðsson og Jónu Björk Helgadóttur frá Útgerðarfélagi Reykjavíkur, Lúðvík Geirsson og Bryndísi Gunnlaugsdóttur frá Hafnasambandi Íslands.

Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 752. mál - pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun Kl. 14:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sigrúnu Brynju Einarsdóttur og Þórarin Örn Þrándarson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 776. mál - ferðagjöf Kl. 14:27
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sigrúnu Brynju Einarsdóttur og Heimi Skarphéðinsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) 604. mál - tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar á Íslandi Kl. 14:34
Allir viðstaddir nefndarmenn samþykktu afgreiðslu málsins til 2. umræðu og rita undir álit með breytingartillögu.

Helgi Hrafn Gunnarsson ritar undir með fyrirvara. Hann var fjarverandi við afgreiðslu málsins og ritar undir í samræmi við 4. mgr. 18. gr. starfsreglna Alþingis.

6) 549. mál - fiskeldi, matvæli og landbúnaður Kl. 14:44
Allir viðstaddir nefndarmenn samþykktu afgreiðslu málsins til 2. umræðu.

Undir álit og breytingartillögu meiri hluta rita Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Haraldur Benediktsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Ólafur Ísleifsson og Sigurður Páll Jónsson.

7) 265. mál - fiskeldi Kl. 14:59
Meiri hluti nefndar, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ásmundur Friðriksson og Haraldur Benediktsson samþykkti afgreiðslu málsins til 3. umræðu án nefndarálits.

8) 345. mál - lax- og silungsveiði Kl. 15:06
Meiri hluti nefndar, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ásmundur Friðriksson og Haraldur Benediktsson samþykkti afgreiðslu málsins til 3. umræðu og ritar undir nefndarálit án breytingartillögu.

9) Önnur mál Kl. 15:12
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:18