78. fundur
atvinnuveganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn laugardaginn 12. júní 2021 kl. 16:00


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 16:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 16:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 16:00
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 16:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 16:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 16:00
Oddný G. Harðardóttir (OH) fyrir Maríu Hjálmarsdóttur (MH), kl. 16:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 16:00
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 16:00

Nefndarritarar:
Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 16:00
Fundargerðir 59.- 62. og 64. - 66. fundar voru samþykktar.

2) Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2012/27/EB frá 25. október 2012 um orkunýtni, breytingu á tilskipunum 2009/125/EB og 2010/30/EB og um niðurfellingu á tilskipunum 2004/8/EB og 2006/32/EB. Kl. 16:00
Tillaga um að afgreiða álit um málið til utanríkismálanefndar var samþykkt.

Allir viðstaddir nefndarmenn rita undir álitið.

3) 140. mál - matvæli Kl. 16:03
Allir viðstaddir nefndarmenn samþykktu afgreiðslu málsins til 2. umræðu.

Undir álit minni hluta skrifa Ólafur Ísleifsson og Sigurður Páll Jónsson auk Helga Hrafns Gunnarssonar og Oddnýjar G. Harðardóttur sem skrifa undir með fyrirvara.

4) 558. mál - brottfall laga um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis Kl. 16:10
Allir viðstaddir nefndarmenn samþykktu afgreiðslu málsins til 2. umræðu.

Undir nefndarálit meiri hluta með frávísunartillögu skrifa Lilja Rafney Magnúsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Haraldur Benediktsson og Njáll Trausti Friðbertsson.

5) Önnur mál Kl. 16:20
Meirihluti nefndar, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Haraldur Benediktsson og Njáll Trausti Friðbertsson samþykkti eftirfarandi bókun vegna frumvarps til laga
um breytingu á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnunar (viðurlög, tengdir aðilar o.fl.)(þskj. 1183 - 704. mál):

„Nefndin hefur haft til meðferðar 704. mál um breyting á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnar (eftirlit Fiskistofu o.fl.). Í frumvarpinu er m.a. er kveðið á um auknar eftirlitsheimildir til Fiskistofu sem geri henni kleift að koma á rafrænu eftirliti við fiskveiðar á hafi úti.

Meiri hluti nefndarinnar leggur áherslu á að góð umgengni um fiskveiðiauðlindina er hagsmunamál allrar þjóðarinnar og hluti af þeirri ímynd sem íslenskur sjávarútvegur er þekktur fyrir. Nauðsynlegt er að vernda þá ímynd eins og kostur er og nýta bestu tækni sem völ er á til veiðieftirlits á hafi úti. Þegar kemur að viðkvæmasta hluta þessa eftirlits verði að taka mið af því að eftirlitið felur í sér eftirlit með brottkasti en ekki einum og einum skemmdum eða dauðum fiski sem slæðist með í veiðarfæri. Æskilegt er að styðja þannig við ábyrga nýtingu þar sem hver og einn ber ábyrgð á sínu mikilvæga hlutverki við að ganga vel um auðlindina og stuðla að hugarfarsbreytingu um að ekki sé stundað brottkast sem og að komið sé í veg fyrir það. Einnig er óþolandi að sjómenn sitji undir því að stunda óábyrga umgengni um auðlindina.

Til að hægt verði að nýta (rafrænar) tæknilausnir í þeim tilgangi að koma í veg fyrir brottkast og telur meiri hlutinn að lögfesta þurfi heimildir til slíks eftirlits, án þess að farið sé gegn stjórnarskrá og meginreglum um friðhelgi einkalífs, persónuvernd og atvinnufrelsi. Hér má nefna fjarstýrð loftför (dróna) með myndavélar eða annan búnað sem getur safnað upplýsingum og þann búnað sem þegar er kominn um borð í fullkomnustu fiskiskip flotans. Meiri hlutinn telur að skorti á að gengið sé frá slíkum heimildum með nægjanlega skýrum hætti í frumvarpinu og einnig þegar kemur að nýtingu nútíma tækni um borð í fiskiskipum.

Meiri hlutinn telur því afar nauðsynlegt að unnið sé vel úr þeim stóru og miklu álitamálum sem hafa komið fram við meðferð málsins, m.a. er varða persónuverndarsjónarmið þegar kemur að heimildum til rafræns eftirlits. Við meðferð nefndarinnar hafa komið fram ágallar á frumvarpinu sem meiri hlutinn telur að vinna þurfi mun betur en svigrúm er til á þeim tíma sem nefndin hefur til umráða það sem eftir er þessa þings. Málinu verður ekki lokið á þessu þingi en verði ákveðið að leggja það aftur fram á næsta þingi telur meiri hlutinn mikilvægt að það verði unnið í góðu samstarfi við Fiskistofu og Persónuvernd til að lagasetning um rafrænt eftirlit með fiskveiðum verði sem vönduðust.“

Fundi slitið kl. 16:43