14. fundur
atvinnuveganefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 15. mars 2022
kl. 09:05
Mætt:
Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 09:05Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ) 1. varaformaður, kl. 09:05
Hildur Sverrisdóttir (HildS) 2. varaformaður, kl. 09:05
Ágústa Ágústsdóttir (ÁgÁ), kl. 09:05
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:05
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:05
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 09:05
Helga Vala Helgadóttir (HVH) fyrir Þórunni Sveinbjarnardóttur (ÞSv), kl. 09:05
Tómas A. Tómasson (TAT) fyrir Ingu Sæland (IngS), kl. 09:05
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:05
Hanna Katrín Friðriksson boðaði forföll vegna annarra þingstarfa.
Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir
Gestir tóku þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:05
Dagskrárlið var frestað.
2) 349. mál - stjórn fiskveiða Kl. 09:06
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Örn Pálsson frá Landssambandi smábátaeigenda.
Einnig fékk nefndin á sinn fund Halldór G. Ólafsson og Unni Valborgu Hilmarsdóttur frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Jóhönnu Ösp Einarsdóttur, Sigríði Kristjánsdóttur og Aðalstein Óskarsson frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga og Elliða Vignisson frá Sveitarfélaginu Ölfusi.
Þá fékk nefndin á sinn fund Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, Heiðmar Guðmundsson og Kristján Þórarinsson frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
3) 350. mál - stjórn fiskveiða og lög um veiðigjald Kl. 10:21
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, Heiðmar Guðmundsson og Kristján Þórarinsson frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Gestir viku kl. 10:24 og nefndin ræddi málið.
4) Önnur mál Kl. 10:32
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:32