7. fundur
atvinnuveganefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 10. febrúar 2022 kl. 09:04


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 09:04
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ) 1. varaformaður, kl. 09:04
Hildur Sverrisdóttir (HildS) 2. varaformaður, kl. 09:04
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:04
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:08
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 09:04
Inga Sæland (IngS), kl. 09:04
Kári Gautason (KGaut) fyrir Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur (BjG), kl. 09:04
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:04

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Gestur tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:04
Fundargerð 6. fundar var samþykkt.

2) Staða nýsköpunar Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar mætti Sigríður Valgeirsdóttir frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.

3) Umsagnarbeiðnir Kl. 10:01
Nefndin samþykkti að veita formanni heimild til að óska eftir umsögnum um þingmál sem til hennar er vísað enda verði nefndarmönnum gefinn kostur á að koma að ábendingum um umsagnaraðila og umsagnarbeiðnin sett á dagskrá næsta fundar nefndarinnar þar á eftir til staðfestingar, sbr. 2. mgr. 23. gr. starfsreglna fastanefnda.

4) 35. mál - Fiskistofa Kl. 10:08
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti og að Inga Sæland verði framsögumaður þess.

5) 32. mál - búvörulög Kl. 10:08
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti og að Inga Sæland verði framsögumaður þess.

6) 41. mál - stjórn fiskveiða Kl. 10:08
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti og að Inga Sæland verði framsögumaður þess.

7) Önnur mál Kl. 10:09
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:15