23. fundur
atvinnuveganefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 28. apríl 2022 kl. 09:05


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 09:05
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ) 1. varaformaður, kl. 09:05
Hildur Sverrisdóttir (HildS) 2. varaformaður, kl. 09:27
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:05
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:31
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 09:05
Helga Þórðardóttir (HelgÞ), kl. 09:05
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:05

Berglind Ósk Guðmundsdóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:05
Dagskrárliðnum var frestað.

2) 475. mál - matvæli og eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru Kl. 09:05
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Benedikt S. Benediktsson frá SVÞ - Samtökum verslunar og þjónustu.

Gesturinn vék kl. 9:21 og nefndin ræddi um málið.

3) 451. mál - stjórn fiskveiða o.fl. Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ernu Jónsdóttur frá Fiskistofu.

4) 582. mál - niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar Kl. 09:39
Nefndin fjallaði um málið.
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti og að Haraldur Benediktsson verði framsögumaður þess.

5) Önnur mál Kl. 09:50
Nefndin ræddi um starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:57