27. fundur
atvinnuveganefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 24. maí 2022 kl. 10:10


Mætt:

Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ) 1. varaformaður, kl. 10:10
Hildur Sverrisdóttir (HildS) 2. varaformaður, kl. 10:10
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 10:10
Helga Þórðardóttir (HelgÞ), kl. 10:10
Helgi Héðinsson (HHéð), kl. 10:10

Gísli Rafn Ólafsson 1. varaformaður stýrði fundinum.

Stefán Vagn Stefánsson, Haraldur Benediktsson og Hanna Katrín Friðriksson boðuðu forföll. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Kristel Finnbogad. Flygenring

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:10
Dagskrárlið frestað.

2) 692. mál - tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi Kl. 10:13
Nefndin samþykkti að Stefán Vagn Stefánsson formaður yrði framsögumaður málsins.

Samþykkt að senda málið til umsagnar með fresti til 30 maí nk.

3) Önnur mál Kl. 10:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:20