30. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 31. janúar 2012 kl. 10:34


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 10:34
Björn Valur Gíslason (BVG), kl. 10:34
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 10:34
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 10:34
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 10:34
Magnús Orri Schram (MSch), kl. 10:34
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 10:34
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 10:34
Þór Saari (ÞSa), kl. 10:34

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 10:34
Fyrir fundinn voru lögð drög af fundargerð síðasta fundar nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt með athugasemdum.

2) 22. mál - norræna hollustumerkið Skráargatið Kl. 10:36
Nefndin ræddi málið.
Fyrir fundinn voru lögð drög að áliti nefndarinnar um málið. Þá var lögð fram tillaga um að nefndin afgreiddi málið á grundvelli álitsdraganna. Tillagan var samþykkt samhljóða.

3) 7. mál - efling græna hagkerfisins á Íslandi Kl. 11:00
Nefndin ræddi málið og meðferð þess.

4) 385. mál - stefna um beina erlenda fjárfestingu Kl. 11:15
Formaður nefndarinnar kynnti nefndinni umsagnarbeiðni efnahags- og viðskiptanefndar.

5) Önnur mál. Kl. 11:36
Nefndin ræddi mögulega dagskrá næsta fundar.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 11:36