45. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 30. mars 2012 kl. 16:35


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 16:35
Bjarkey Gunnarsdóttir (BjG) fyrir LRM, kl. 16:35
Björn Valur Gíslason (BVG), kl. 16:35
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS) fyrir SIJ, kl. 16:35
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 16:35
Kristján Þór Júlíusson (KÞJ) fyrir EKG, kl. 16:35
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 16:35

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 16:35
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt.

2) 658. mál - veiðigjöld Kl. 16:36
Lögð var fram tillaga um að málið yrði sent til umsagnar með umsagnarfresti til 20. apríl nk. Tillagan var samþykkt.
Lögð var fram tillaga um að BVG yrði framsögumaður málsins. Tilagan var samþykkt.


3) Önnur mál. Kl. 16:40
ÞSa og SER voru fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 16:40