46. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 2. apríl 2012 kl. 13:18


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 13:18
Björn Valur Gíslason (BVG), kl. 13:18
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 13:18
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 13:18
Sigmundur Ernir Rúnarsson (SER), kl. 13:36
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 13:18
Þór Saari (ÞSa), kl. 13:18

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð síðasta fundar. Kl. 15:26
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt.

2) 657. mál - stjórn fiskveiða Kl. 13:19
Á fund nefndarinnar komu Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóhann Guðmundsson, Arnór Snæbjörnsson og Valdimar Halldórsson frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Gestirnir kynntu nefndinni þingmálið og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

3) 658. mál - veiðigjöld Kl. 13:19
Á fund nefndarinnar komu Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóhann Guðmundsson, Arnór Snæbjörnsson og Valdimar Halldórsson frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Gestirnir kynntu nefndinni þingmálið og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

4) Önnur mál. Kl. 15:28
Nefndin ræddi mögulega dagskrá næstu funda.
JónG yfirgaf fundinn kl. 15:15.
EKG og ÓÞ voru fjarverandi.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.


Fundi slitið kl. 15:28