50. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 20. apríl 2012 kl. 08:36


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 08:36
Björn Valur Gíslason (BVG), kl. 09:18
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 08:36
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS), kl. 08:36
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 08:36
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 08:36
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 08:36
Sigmundur Ernir Rúnarsson (SER), kl. 08:36
Þór Saari (ÞSa), kl. 08:36

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 10:30
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar. Gerðardrögin voru samþykkt.

2) 657. mál - stjórn fiskveiða Kl. 08:36
Á fund nefndarinnar komu Arthur Bogason og Örn Pálsson frá Landssambandi smábátaeigenda og Elín Björg Ragnarsdóttir, Gunnar Örlygsson og Sigurður Ingi Jónsson frá Samtökum fiskframleiðenda og útflytjenda. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu sína til þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

3) 658. mál - veiðigjöld Kl. 08:36
Á fund nefndarinnar komu Arthur Bogason og Örn Pálsson frá Landssambandi smábátaeigenda og Elín Björg Ragnarsdóttir, Gunnar Örlygsson og Sigurður Ingi Jónsson frá Samtökum fiskframleiðenda og útflytjenda. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu sína til þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

4) Önnur mál. Kl. 10:30
Nefndin ræddi mögulega dagskrá næsta fundar.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.
BVG kom seint á fundinn vegna tímasetningar flugsamgangna á milli Akureyrar og Reykjavíkur.

Fundi slitið kl. 10:33