53. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 26. apríl 2012 kl. 08:38


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 08:38
Björn Valur Gíslason (BVG), kl. 08:38
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 08:38
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 08:50
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 08:38
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 08:38
Sigmundur Ernir Rúnarsson (SER), kl. 08:38
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 08:41
Þór Saari (ÞSa), kl. 08:38

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 08:38
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar. Gerðardrögin voru samþykkt.

2) 657. mál - stjórn fiskveiða Kl. 08:39
Á fund nefndarinnar komu Gylfi Arnbjörnsson og Ólafur Darri Andrason frá Alþýðusambandi Íslands og Eyþór Björnsson og Hrefna Gísladóttir frá Fiskistofu. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu sína til þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

3) 658. mál - veiðigjöld Kl. 08:39
Á fund nefndarinnar komu Gylfi Arnbjörnsson og Ólafur Darri Andrason frá Alþýðusambandi Íslands. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu sína til þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

4) Önnur mál. Kl. 10:17
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 10:17