58. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 4. maí 2012 kl. 08:32

Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 08:32
Björn Valur Gíslason (BVG), kl. 08:32
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 08:32
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 08:32
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 08:32
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 09:07
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 08:32
Þór Saari (ÞSa), kl. 08:32

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 10:27
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð 56. og 57. funda nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt.

2) 657. mál - stjórn fiskveiða Kl. 08:33
Á fund nefndarinnar komu Guðmundur Ragnarsson og Halldór A. Guðmundsson frá Félagi vélstjóra og málmtæknimanna, Guðjón Ármann Einarsson frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Kristján Bragason frá Starfsgreinasambandi Íslands, Sævar Gunnarsson og Hólmgeir Jónsson frá Sjómannasambandi Íslands og Grétar Mar Jónsson og Hallgrímur Pálmi Stefánsson frá Samtökum íslenskra fiskimanna. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu sína til málsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

3) 658. mál - veiðigjöld Kl. 08:33

4) Önnur mál. Kl. 10:29
SER var fjarverandi.
SIJ yfirgaf fundinn kl. 10:22 vegna annarra þingstarfa.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 10:29