63. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 11. maí 2012 kl. 08:33


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 08:33
Björn Valur Gíslason (BVG), kl. 08:33
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 08:33
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 08:46
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 08:33
Sigmundur Ernir Rúnarsson (SER), kl. 08:33
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 09:12

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð síðasta fundar. Kl. 09:43
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt.

2) 657. mál - stjórn fiskveiða Kl. 08:33
Á fund nefndarinnar komu Kristján Freyr Helgason, Hrefna M. Karlsdóttir og Jóhann Guðmundsson frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Gestirnir kynntu nefndinni einstök ákvæði þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarinnar að því loknu.
Á fundinum voru eftirfarandi gögn lögð fram:
Vigtun sjávarafla o.fl. - greinargerð vinnuhóps.
Minnisblað sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins dags. 11. maí 2012.

3) Önnur mál. Kl. 09:55
Nefndin ræddi mögulega dagskrá næstu funda.
LRM var fjarverandi vegna veikinda.
ÞSa var fjarverandi skv. tilkynningu.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 10:09