67. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 18. maí 2012 kl. 08:37


Mættir:

Ásbjörn Óttarsson (ÁsbÓ) fyrir EKG, kl. 08:37
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 08:37
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 08:37
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 08:45
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 08:57
Þór Saari (ÞSa), kl. 08:37

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð síðasta fundar. Kl. 08:37
Fundargerðin var ekki rædd.

2) 727. mál - áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða Kl. 08:38
Nefndin fundaði sameiginlega með umhverfis- og samgöngunefnd um málið og komu GLG, ÞBach, MÁ, ÁJ og RM á fundinn. GLG stjórnaði fundi.
Á fund nefndarinnar komu Guðmundur Hörður Guðmundsson og Guðmundur Ingi Guðbrandsson frá Landvernd. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu sína til þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.


3) Önnur mál. Kl. 10:04
KLM,SER og BVG voru fjarverandi.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 10:04