27. fundur
atvinnuveganefndar á 141. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 11. desember 2012 kl. 09:37


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 09:37
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 09:37
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 09:37
Jónína Rós Guðmundsdóttir (JRG), kl. 09:42
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:37
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 09:37

ÞSa boðaði forföll.
BVG og ÓÞ voru fjarverandi.

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 10:56
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt.

2) 448. mál - búnaðarlög og framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum Kl. 09:37
Á fund nefndarinnar kom Sigurgeir Þorgeirsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Sigurgeir kynnti nefndinni þingmálið og svaraði spurningum nefndarmanna.


3) 415. mál - stjórnarskipunarlög Kl. 10:04
Á fund nefndarinnar komu Arthur Bogason og Örn Pálsson frá Landssambandi smábátaeigenda. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu sína til ákveðinna þátta málsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

4) Önnur mál. Kl. 10:56
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 10:56