48. fundur
atvinnuveganefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 1. apríl 2014 kl. 10:00


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 10:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 10:10
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 10:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 10:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 10:00
Kristján L. Möller (KLM), kl. 10:00
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 10:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 10:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 10:00

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerðir. Kl. 10:00
Dagskrárliðnum var frestað.

2) 319. mál - fiskeldi Kl. 10:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Guðberg Rúnarsson og Jón Kjartan Jónsson frá Landssambandi fiskeldisstöðva.

3) 375. mál - smáþörungaverksmiðja Algalífs Iceland ehf. á Reykjanesi Kl. 10:45
Nefndin hóf umfjöllun sína um málið og fékk á sinn fund Þórð Reynisson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

4) 256. mál - stefnumótandi byggðaáætlun 2014--2017 Kl. 11:25
Málið var afgreitt frá nefndinni. Allir mættir nefndarmenn skrifa undir nefndarálit en LRM með fyrirvara.

5) 60. mál - raflínur í jörð Kl. 11:40
Málið var afgreitt frá nefndinni. Allir mættir nefndarmenn skrifa undir nefndarálit.

6) 211. mál - efling skógræktar sem atvinnuvegar Kl. 11:50
Málið var afgreitt frá nefndinni. Undir nefndarálit meiri hluta rita: JónG, HarB, ÁsF, BjÓ, KLM, PJP, ÞorS, ÞórE.

7) Önnur mál. Kl. 12:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00