57. fundur
atvinnuveganefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 6. maí 2014 kl. 09:00


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 09:00
Kristján L. Möller (KLM), kl. 09:00
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:00

Ásmundur Friðriksson og Þorsteinn Sæmundsson véku af fundi kl. 12.
Björt Ólafsdóttir vék af fundi kl. 11:50.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 09:00
Fundargerðir 50.-53. fundar voru samþykktar.

2) 568. mál - veiðigjöld Kl. 09:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Ólaf Darra Andrason og Róbert Farestveit frá Alþýðusambandi Íslands og Guðjón Bragason og Gunnlaug Júlíusson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

3) 319. mál - fiskeldi Kl. 10:10
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Orra Vigfússon og Lenu Valdimarsdóttur frá Verndarsjóði villtra laxastofna.

4) 153. mál - stjórn fiskveiða Kl. 11:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Arnór Snæbjörnsson, Hinrik Greipsson og Jóhann Guðmundsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

5) Önnur mál. Kl. 12:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:15