32. fundur
atvinnuveganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 12. apríl 2016 kl. 10:00


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 10:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 10:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 10:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 10:10
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 10:10
Kristján L. Möller (KLM), kl. 10:10
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 10:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 10:00

Þórunn Egilsdóttir boðaði forföll.
Björt Ólafsdóttir vék af fundi kl. 10.50.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Fundargerðir 30. og 31. fundar voru samþykktar.

2) Meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla skv. 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006. Kl. 10:10
Nefndin fjallaði um meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla skv. 5. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða. Á fund nefndarinnar komu Baldur P. Erlingsson og Hinrik Greipsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

3) 457. mál - veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald Kl. 11:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Brynhildi Pálmarsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

4) Önnur mál Kl. 11:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:50