15. fundur
atvinnuveganefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 6. nóvember 2018 kl. 09:00


Mættir:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:00
Inga Sæland (IngS) 1. varaformaður, kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 09:00
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE), kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:00
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 09:00
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:00
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 09:30

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) 144. mál - veiðigjald Kl. 09:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Karl Óttar Pétursson frá Fjarðabyggð og Heiðveigu Maríu Einarsdóttur sjómann og viðskiptalögfræðing.

2) 178. mál - dýralæknar og heilbrigðisþjónusta við dýr Kl. 10:10
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Sigurð Eyþórsson frá Bændasamtökum Íslands og Charlottu Oddsdóttur og Guðbjörgu Þorvarðardóttur frá Dýralæknafélagi Íslands.

3) Önnur mál Kl. 10:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:50