15. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 5. nóvember 2019 kl. 09:10


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 10:00
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:10
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:10

Oddný G. Harðardóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerðir 9. til og með 12. fundar voru samþykktar.

2) Þjóðhagsspá að vetri 2019 Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Marinó Melsteð, Björn Hrannar Björnsson, Gunnar Snorra Guðmundsson og Brynjar Örn Ólafsson frá Hagstofu Íslands.

3) Stafrænt Ísland Kl. 10:20
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sigurð H. Helgason og Einar Birki Einarsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

4) 4. mál - sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki Kl. 11:00
Dagskrárlið frestað.

5) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00