39. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 4. febrúar 2020 kl. 09:10


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:10

Smári McCarthy, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Þorsteinn Víglundsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerðir 37. og 38. fundar voru samþykktar.

2) Lög um neytendalán (smálán) Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sigríði Laufeyju Jónsdóttur og Gunnar Gunnarsson frá Creditinfo.

3) 181. mál - félög til almannaheilla Kl. 09:40
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Jónas Guðmundsson og Árna Einarsson frá Almannaheill og Guðmund Löve, Sólveigu Hildi Björnsdóttur og Svein Guðmundsson frá SÍBS.

4) 313. mál - stimpilgjald Kl. 10:20
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Árna Bjarnason frá Félagi skipstjórnarmanna, Vilmund Vilmundsson frá Sjómannasambandi Íslands og Guðmund Helga Þórarinsson frá Félagi vélstjóra og málmtæknimanna.

5) 332. mál - breyting á ýmsum lögum varðandi leyfisveitingar Kl. 11:00
Dagskrárlið frestað.

6) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00