43. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 18. febrúar 2020 kl. 09:10


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 09:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:10
Þorgrímur Sigmundsson (ÞorgS) fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:10

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárlið frestað.

2) Lög um neytendalán (smálán) Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Bryndísi Helgadóttur frá dómsmálaráðuneyti.

3) Þjóðhagslegt mikilvægi áliðnaðar. Kl. 09:40
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Marinó Melsted frá Hagstofu Íslands (kl. 09:40) og Sigurð Hannesson og Ingólf Bender frá Samtökum iðnaðarins (kl. 10:20).

4) 158. mál - innheimtulög Kl. 09:35
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með þriggja vikna fresti og að Brynjar Níelsson yrði framsögumaður þess.

5) 176. mál - erfðafjárskattur Kl. 09:35
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með þriggja vikna fresti og að Þorsteinn Víglundsson yrði framsögumaður þess.

6) Önnur mál Kl. 11:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:15