56. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 24. mars 2020 kl. 16:15


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 16:15
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 16:15
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 16:15
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 16:15
Inga Sæland (IngS), kl. 16:15
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 16:15
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 16:15
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 16:15
Smári McCarthy (SMc), kl. 16:15
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 16:15

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Eyþór Benediktsson
Sigrún Rósa Björnsdóttir
Steindór Dan Jensen

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 16:00
Dagskrárlið frestað.

2) 683. mál - aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 16:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðmund Ásgeirsson og Vilhjálm Bjarnason frá Hagsmunasamtökum heimilanna, Þóreyju S. Þórðardóttur, Guðrúnu Hafsteinsdóttur, Gylfa Jónasson, Ólaf Sigurðsson, Tómas Möller og Agna Ásgeirsson frá Landssamtökum lífeyrissjóða (kl. 16:40), Jón Trausta Ólafsson og Maríu Jónu Magnúsdóttur frá Bílgreinasambandinu (kl. 17:05), Jóhannes Þór Skúlason og Benedikt S. Benediktsson frá Samtökum ferðaþjónustunnar (kl. 17:20), Benedikt S. Benediktsson frá Samtökum verslunar og þjónustu (kl. 18:05), og Sigurð Hannesson og Sigríði Mogensen frá Samtökum iðnaðarins (kl. 18:20).

3) Önnur mál Kl. 18:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 18:50