89. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 9. júní 2020
kl. 09:10
Mætt:
Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:10
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi.
Nefndarritarar:
Steindór Dan Jensen
Ívar Már Ottason
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerðir 80.-88. fundar voru samþykktar.
2) 609. mál - tollalög Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Benedikt S. Benediktsson frá Samtökum verslunar og þjónustu.
3) 181. mál - félög til almannaheilla Kl. 09:40
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sigurbjörgu Stellu Guðmundsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
4) 709. mál - aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og skráning raunverulegra eigenda Kl. 10:20
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Drífu Sigurðardóttur frá dómsmálaráðuneyti.
5) Önnur mál Kl. 10:45
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:45