95. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 23. júní 2020 kl. 10:00


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 10:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 10:00
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 10:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 10:00
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 10:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 10:00
Smári McCarthy (SMc), kl. 10:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 10:00

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Fundargerðir 93. og 94. fundar voru samþykktar.

2) 27. mál - tekjuskattur Kl. 10:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ingibjörgu Helgu Helgadóttur, Vilmar Frey Sævarsson og Hlyn Ingason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Nefndin ákvað að afgreiða málið til annarrar umræðu.
Allir viðstaddir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu.

3) 34. mál - tekjuskattur Kl. 10:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ingibjörgu Helgu Helgadóttur, Vilmar Frey Sævarsson og Hlyn Ingason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Nefndin ákvað að afgreiða málið til annarrar umræðu.
Óli Björn Kárason, Ólafur Þór Gunnarsson, Bryndís Haraldsdóttir, Brynjar Níelsson, Jón Steindór Valdimarsson og Willum Þór Þórsson skrifuðu undir nefndarálit meiri hluta með breytingartillögu, þar af Jón Steindór með fyrirvara.

4) 181. mál - félög til almannaheilla Kl. 10:20
Samþykkt var að afgreiða málið til annarrar umræðu með atkvæðum allra viðstaddra nefndarmanna utan Oddnýjar G. Harðardóttur sem sat hjá við atkvæðagreiðsluna.

Allir viðstaddir nefndarmenn utan Oddnýjar G. Harðardóttur og Jóns Steindórs Valdimarssonar skrifuðu undir nefndarálit með frávísunartillögu, þar af Ólafur Þór Gunnarsson með fyrirvara.

5) Önnur mál Kl. 10:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:30