97. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, föstudaginn 26. júní 2020 kl. 16:07


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 16:07
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 16:07
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 16:07
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 16:07
Smári McCarthy (SMc), kl. 16:07

Bryndís Haraldsdóttir, Brynjar Níelsson, Oddný G. Harðardóttir og Willum Þór Þórsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 16:07
Dagskrárlið frestað.

2) 960. mál - fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur Kl. 16:07
Nefndin samþykkti að prenta upp nefndarfrumvarpið í 960. máli (fjárstuðningur til minni rekstraraðila o.fl.) og bæta við frumvarpið kafla um breytingu á þinglýsingalögum.

3) Önnur mál Kl. 16:08
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:08