4. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 20. október 2020 kl. 09:10


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 09:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:10
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:10

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 3. fundar var samþykkt.

2) 23. mál - ráðstafanir gegn óréttmætri takmörkun á netumferð o.fl. Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Heimi Skarphéðinsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

3) 13. mál - viðskiptaleyndarmál Kl. 09:40
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Daða Ólafsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

4) Framkvæmd og umfang aðgerða vegna heimsfaraldurs Kl. 10:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Snorra Olsen ríkisskattstjóra og Elínu Ölmu Arthursdóttur vararíkisskattstjóra.

5) 24. mál - tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks Kl. 10:40
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með fresti til 10. nóvember og að Óli Björn Kárason yrði framsögumaður þess.

6) 114. mál - tekjuskattur Kl. 10:45
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með fresti til 10. nóvember og að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson yrði framsögumaður þess.

7) Önnur mál Kl. 10:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00