21. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 23. nóvember 2020 kl. 15:15


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 15:15
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 15:15
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 15:15
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 15:15
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 15:15
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 15:15
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 15:15
Smári McCarthy (SMc), kl. 15:15
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 15:30

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:15
Dagskrárlið frestað.

2) 313. mál - skipagjald Kl. 15:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðrúnu Ingu Torfadóttur, Ingibjörgu Helgu Helgadóttur, Hlyn Ingason og Steinar Örn Steinarsson.

Nefndin ákvað að Brynjar Níelsson yrði framsögumaður málsins. Á síðasta fundi nefndarinnar ákvað nefndin að málið yrði sent til umsagnar um leið og því yrði vísað til hennar með fresti til 2. desember.

3) 314. mál - skattar og gjöld Kl. 15:25
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ingibjörgu Helgu Helgadóttur, Guðrúnu Ingu Torfadóttur, Hlyn Ingason og Steinar Örn Steinarsson.

Nefndin ákvað að Óli Björn Kárason yrði framsögumaður málsins. Á síðasta fundi nefndarinnar ákvað nefndin að málið yrði sent til umsagnar um leið og því yrði vísað til hennar með fresti til 2. desember.

4) 13. mál - viðskiptaleyndarmál Kl. 15:45
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu.

Allir viðstaddir nefndarmenn utan Smára McCarthy rituðu undir nefndarálit og breytingartillögur meiri hluta.

5) 5. mál - breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021 Kl. 15:50
Nefndin fjallaði um málið.

6) 98. mál - ástandsskýrslur fasteigna Kl. 16:00
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með fresti til 7. desember og að Smári McCarthy yrði framsögumaður þess.

7) 312. mál - fjárhagslegar viðmiðanir Kl. 16:00
Nefndin ákvað að Óli Björn Kárason yrði framsögumaður málsins. Á síðasta fundi nefndarinnar ákvað nefndin að málið yrði sent til umsagnar um leið og því yrði vísað til hennar með fresti til 2. desember.

8) Önnur mál Kl. 16:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:25