36. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn föstudaginn 15. janúar 2021 kl. 09:10


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 09:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:10
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:10

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárlið frestað.

2) 342. mál - breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld Kl. 09:10
Ákveðið var að Willum Þór Þórsson yrði nýr framsögumaður málsins.

3) 312. mál - fjárhagslegar viðmiðanir Kl. 09:10
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu.

Allir viðstaddir nefndarmenn utan Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar rituðu undir nefndarálit meiri hluta.

4) 313. mál - skipagjald Kl. 09:15
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu.

Allir viðstaddir nefndarmenn utan Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar rituðu undir nefndarálit meiri hluta.

5) Greinagerð um sölu á hlut í Íslandsbanka Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið.

6) Önnur mál Kl. 10:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:00