39. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 21. janúar 2021 kl. 10:05


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 10:05
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 10:05
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 10:05
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 10:05
Oddný Guðbjörg Harðardóttir (OH), kl. 10:05
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 10:05
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 10:05
Smári McCarthy (SMc), kl. 10:05
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 10:05

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:05
Fundargerð 37. fundar var samþykkt.

2) 341. mál - reglubundin og viðvarandi upplýsingaskylda útgefenda verðbréfa og flöggunarskylda Kl. 10:05
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með fresti til 8. febrúar og að Brynjar Níelsson yrði framsögumaður þess.

3) 399. mál - tekjuskattur Kl. 10:05
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með fresti til 8. febrúar og að Bryndís Haraldsdóttir yrði framsögumaður þess.

4) 344. mál - Neytendastofa o.fl. Kl. 10:05
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með fresti til 8. febrúar og að Óli Björn Kárason yrði framsögumaður þess.

5) 400. mál - breyting á ýmsum lögum er varða úrskurðaraðila á sviði neytendamála Kl. 10:05
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með fresti til 8. febrúar og að Þórarinn Ingi Pétursson yrði framsögumaður þess.

6) 342. mál - breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld Kl. 10:10
Ákveðið var að Þórarinn Ingi Pétursson yrði framsögumaður málsins.

7) Önnur mál Kl. 10:10
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:10