77. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 27. maí 2021 kl. 09:30


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 09:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:10
Hjálmar Bogi Hafliðason (HBH), kl. 09:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB) fyrir Ágúst Ólaf Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:10

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Dagskrárlið frestað.

2) 791. mál - fasteignalán til neytenda Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ásthildi Lóu Þórsdóttur og Guðmund Ásgeirsson frá Hagsmunasamtökum heimilanna.

3) 625. mál - stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda Kl. 09:45
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Vigdísi Evu Líndal og Rebekku Rán Samper frá Persónuvernd.

4) 537. mál - gjaldeyrismál Kl. 10:15
Nefndin fjallaði um málið.

5) 697. mál - breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld Kl. 10:25
Nefndin fjallaði um málið.

6) 603. mál - félög til almannaheilla Kl. 10:35
Nefndin fjallaði um málið.

7) Skýrslubeiðni til fjármála- og efnahagsráðherra um mat á árangri aðgerða til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 10:45
Nefndin fjallaði um málið.

8) 768. mál - skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða Kl. 10:55
Nefndin fjallaði um málið.

9) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00