1. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 6. desember 2021
kl. 09:20
Mætt:
Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) formaður, kl. 09:20Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 09:20
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) 2. varaformaður, kl. 09:30
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:20
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:20
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 09:20
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 09:20
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) fyrir (GE), kl. 09:20
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:20
Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson
Bókað:
1) Starfið framundan Kl. 09:20
Nefndin fjallaði um málið.
2) 3. mál - breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022 Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Steinar Örn Steinarsson, Írisi Hönnuh Atladóttur, Benedikt Axel Ágústsson, Guðrúnu Ingu Torfadóttur, Hlyn Ingason og Guðlaugu Maríu Valdemarsdóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Gestir tóku þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað.
Nefndin ákvað að heimila formanni, fyrir hönd nefndarinnar, að óska eftir umsögnum um málið þegar því yrði vísað til nefndarinnar, enda verði nefndarmönnum gefinn kostur á að koma að ábendingum um umsagnaraðila, sbr. 2. mgr. 23. gr. starfsreglna fastanefnda. Ákveðið var að umsagnarfrestur verði ein vika.
3) 4. mál - skattar og gjöld Kl. 10:15

4) Beiðni um áheyrnaraðild Kl. 11:05
Formaður upplýsti nefndina um að þingflokkur Miðflokksins hefði tilnefnt Sigmund Davíð Gunnlaugsson sem áheyrnarfulltrúa við nefndina, sbr. 1. mgr. 7. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingi
5) Önnur mál Kl. 11:10
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:00