48. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 15. apríl 2016 kl. 10:15


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 10:15
Brynjar Níelsson (BN) 1. varaformaður, kl. 10:15
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 10:15
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 10:15
Katrín Jakobsdóttir (KJak), kl. 10:15
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:15
Valgerður Bjarnadóttir (VBj), kl. 10:15
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 10:15

Sigríður Á Andersen boðaði forföll.
Ásta Guðrún Helgadóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Gautur Sturluson

Bókað:

1) 667. mál - skattar og gjöld Kl. 10:15
Á fund nefndarinnar mættu Benedikt Benediktsson, Ingibjörg Helga Helgadóttir, Hlynur Ingason og Steinar Örn Steinarsson frá fjármála- og atvinnuvegaráðuneytinu og kynntu málið fyrir nefndinni og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) 668. mál - fjármögnun og rekstur nýsköpunarfyrirtækja og smærri fyrirtækja í vexti Kl. 10:45
Á fund nefndarinnar mættu Benedikt Benediktsson, Ingibjörg Helga Helgadóttir, Hlynur Ingason og Steinar Örn Steinarsson frá fjármála- og atvinnuvegaráðuneytinu og kynntu málið fyrir nefndinni og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 7. mál - skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða Kl. 11:15
Þessum dagskrárlið var frestað.

4) 8. mál - virðisaukaskattur Kl. 11:15
Þessum dagskrárlið var frestað.

5) 169. mál - umbætur á fyrirkomulagi peningamyndunar Kl. 11:15
Þessum dagskrárlið var frestað.

6) 114. mál - undirbúningur að gerð þjóðhagsáætlana til langs tíma Kl. 11:15
Þessum dagskrárlið var frestað.

7) 86. mál - tekjuskattur Kl. 11:15
Þessum dagskrárlið var frestað.

8) Önnur mál Kl. 11:15
Ekki var fleira gert á þessum fundi.

Fundi slitið kl. 12:00