10. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 19. desember 2016 kl. 09:00


Mættir:

Benedikt Jóhannesson (BenJ) formaður, kl. 09:00
Brynjar Níelsson (BN) 1. varaformaður, kl. 09:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 09:32
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:00
Katrín Jakobsdóttir (KJak), kl. 09:00
Logi Einarsson (LE), kl. 09:00
Sigríður Á. Andersen (SÁA), kl. 09:00
Smári McCarthy (SMc) fyrir Evu Pandoru Baldursdóttur (EPB), kl. 09:00
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:00

Björt Ólafsdóttir boðaði að hún yrði sein. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir kom á fund nefndarinnar í stað Smára McCarthy kl. 10:34.

Nefndarritarar:
Gautur Sturluson
Gunnlaugur Helgason
Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 9. fundar var samþykkt.

2) 2. mál - ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2017 Kl. 09:01
Á fund nefndarinnar komu Benedikt Benediktsson og Ingibjörg Helga Helgadóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

3) 6. mál - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins Kl. 09:58
Rætt var um málið.

4) 7. mál - kjararáð Kl. 10:34
Á fund nefndarinnar kom Hafsteinn Þór Hauksson frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

5) Önnur mál Kl. 13:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:00