3. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 19. september 2019 kl. 10:05


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 10:05
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 10:05
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 10:05
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 10:05
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 10:05
Smári McCarthy (SMc), kl. 10:05
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) fyrir Silju Dögg Gunnarsdóttur (SilG), kl. 10:05

Brynjar Níelsson og Oddný G. Harðardóttir voru fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Frumvarp vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins Kl. 10:05
Meiri hluti nefndarinnar (ÓBK, ÓGunn, BHar, SMc, ÞorstV, WÞÞ) ákvað að flytja frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins.

2) Önnur mál Kl. 10:10
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:10