18. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 14. nóvember 2019 kl. 09:10


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 09:25
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Birgir Ármannsson (BÁ) fyrir Bryndísi Haraldsdóttur (BHar), kl. 09:40
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:30
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:25
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:10

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerðir 16. og 17. fundar voru samþykktar.

2) 332. mál - breyting á ýmsum lögum varðandi leyfisveitingar Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Heimi Skarphéðinsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

3) 186. mál - fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri Kl. 09:35
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu. Allir viðstaddir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu.

4) 3. mál - tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda Kl. 09:45
Samþykkt var að afgreiða málið til annarrar umræðu með atkvæðum allra viðstaddra nefndarmanna utan Oddnýjar G. Harðardóttur sem sat hjá við atkvæðagreiðsluna.

Óli Björn Kárason, Ólafur Þór Gunnarsson, Brynjar Níelsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Birgir Ármannsson skrifuðu undir nefndarálit meiri hluta með breytingartillögu.

5) Önnur mál Kl. 09:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:50