53. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, laugardaginn 21. mars 2020 kl. 16:10


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 16:10
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 16:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 16:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 16:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 16:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 16:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 16:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 16:10
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 16:10

Nefndarritarar:
Sigrún Rósa Björnsdóttir
Steindór Dan Jensen

Bryndís Haraldsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Smári McCarthy tóku þátt í fundinum með fjarfundabúnaði, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Þá voru eftirtaldir sérfræðingar nefndarinnar í fjarfundabúnaði: Arnar Kári Axelsson, Eyþór Benediktsson, Sigrún Rósa Björnsdóttir og Steindór Dan Jensen.

Bókað:

1) 683. mál - aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 16:10
Nefndin fjallaði um málið og ræddi við Helgu Jónsdóttur og Ingibjörgu Helgu Helgadóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneytið í gegnum fjarfundabúnað.

2) Önnur mál Kl. 17:30
Nefndin ræddi starfið framundan.
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 17:35