71. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 5. maí 2020 kl. 09:00


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 09:00
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:00
Inga Sæland (IngS), kl. 09:00
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:00
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:00

Nefndarritarar:
Eyþór Benediktsson
Sigrún Rósa Björnsdóttir
Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) Sviðsmyndir í efnahagsmálum Kl. 09:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Tómas Brynjólfsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

3) 725. mál - fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 09:40
Nefndin fjallaði um málið.

4) 726. mál - breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 09:50
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu með atkvæðum allra viðstaddra nefndarmanna utan Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem sat hjá.

Allir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálit og breytingartillögur, þar af Jón Steindór Valdimarsson, Oddný G. Harðardóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Smári McCarthy með fyrirvara.

5) Önnur mál Kl. 10:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:00