3. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 14. október 2020 kl. 15:00


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 15:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 15:00
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 15:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 15:00
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 15:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 15:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 15:00
Smári McCarthy (SMc), kl. 15:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 15:00

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Steindór Dan Jensen

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:00
Fundargerð 2. fundar var samþykkt.

2) Kynning á þingmálaskrá fjármála- og efnahagsráðherra Kl. 15:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Bjarna Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Guðrúnu Þorleifsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Hrafn Hlynsson og Harald Steinþórsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

3) Kynning á þingmálaskrá ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Kl. 16:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ingva Má Pálsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

4) Breyting á lögum um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslna hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, nr. 50/2020 Kl. 15:55
Meiri hluti nefndarinnar (ÓBK, JSV, BHar, BN, ÓGunn, SDG og WÞÞ) ákvað að flytja frumvarp til laga um breytingu á lögum um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslna hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, nr. 50/2020.

5) Önnur mál Kl. 17:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 17:00