15. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 10. nóvember 2020
kl. 09:10
Mætt:
Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 09:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:10
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:10
Óli Björn Kárason vék af fundi kl. 10:10 og tók þá Jón Steindór Valdimarsson við fundarstjórn.
Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Steindór Dan Jensen
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:10
Frestað.
2) 5. mál - breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021 Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðmund Þór Guðmundsson frá Þjóðkirkjunni, Steindór Haraldsson, Óskar Magnússon og Valgerði Sverrisdóttur frá Sóknasambandi Íslands og Auði Önnu Magnúsdóttur frá Landvernd.
3) 4. mál - tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda Kl. 10:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ágúst Karl Guðmundsson og Sigurjón Högnason frá KPMG, Guðbjörgu Þorsteinsdóttur frá Deloitte, Heiðrúnu Björk Gísladóttur frá Samtökum atvinnulífsins og Steinunni Pálmadóttur frá Samtökum iðnaðarins.
4) Önnur mál Kl. 11:35
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:35