66. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 29. apríl 2021 kl. 09:10


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 09:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB) fyrir Oddnýju G. Harðardóttur (OH), kl. 09:30
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:10
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:10

Jón Steindór Valdimarsson vék af fundi kl. 10:10.

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárlið frestað.

2) 583. mál - greiðsluþjónusta Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ásgeir Ásgeirsson og Viggó Ásgeirsson frá Samtökum fjártæknifyrirtækja og Vigdísi Evu Líndal og Gunnar Inga Ágústsson frá Persónuvernd.

3) 641. mál - lykilupplýsingaskjöl vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta Kl. 09:50
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Rannveigu Júníusdóttur og Guðrúnu Finnborgu Þórðardóttur frá Seðlabanka Íslands.

Samhliða var fjallað um 4. dagskrármál um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár (dregið úr reglubyrði)

4) 643. mál - afleiðuviðskipti, miðlægir mótaðilar og afleiðuviðskiptaskrár Kl. 09:50
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Rannveigu Júníusdóttur og Guðrúnu Finnborgu Þórðardóttur frá Seðlabanka Íslands.

Samhliða var fjallað um 3. dagskrármál um lykilupplýsingaskjöl vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta.

5) Starfsemi Samkeppniseftirlitsins Kl. 10:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Pál Gunnar Pálsson og Kristínu Haraldsdóttur frá Samkeppniseftirlitinu.

6) Önnur mál Kl. 11:05
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:05